Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 27. maí 2017 05:55
Dagur Lárusson
Spánn í dag - Kveður Enrique með titli?
Luis Enrique.
Luis Enrique.
Mynd: Getty Images
Einn leikur fer fram í spænsku knattspyrnunni í dag og er það jafnframt síðasti leikurinn á tímabilinu. Þetta er viðureign Barcelona og Alaves í úrslitum bikarsins.

Barcelona á möguleika á að vinna sinn eina titil á tímabilinu en flestir sparkspekingar eru sammála um það að þetta tímabil hjá Barcelona hafi verið mikil vonbrigði en liðið féll út úr meistaradeildinni í 8-liða úrslitum gegn Juventus og endaði einnig í 2.sæti í deildinni og voru það erkifjendurnir í Real Madrid sem að hirtu titilinn.

Þetta verður jafnframt síðasti leikur Luis Enrique sem þjálfari Barcelona en hann tilkynni starfslok sín fyrr á árinu. Það er því spurning hvort að Enrique muni enda þjálfaraferill sinn hjá félaginu með titli.

Laugardagur 27.maí
19:30 Barcelona - Alaves
Athugasemdir
banner
banner