KFG 0-3 Vængir Júpíters
0-1 Eyþór Daði Hauksson (8´)
0-2 Alexander Bjarki Rúnarsson (19´)
0-3 Tryggvi Magnússon (51´)
0-1 Eyþór Daði Hauksson (8´)
0-2 Alexander Bjarki Rúnarsson (19´)
0-3 Tryggvi Magnússon (51´)
Einn leikur fór fram í 3.deild karla í kvöld og var það viðureign KFG og Vængja Júpíters.
Það voru Vængirnir sem voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og náðu þeir forystu strax á 8. mínútu leiksins með marki frá Eyþóri Daða Haukssyni.
Það var síðan Alexander Bjarki Rúnarsson sem að tvöfaldaði forystu Vængjanna á 19. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.
Vængirnir héldu áfram yfirburðum sínum í seinni hálfleiknum og skoruðu strax á 51. mínútu en þar var að verki Tryggvi Magnússon.
Vængirnir náðu þó ekki að skora fleiri mörk og því var lokastaðan 0-3.
Athugasemdir