Þórhallur Dan þjálfari Gróttu er bjartsýnn fyrir framhaldið í Inkasso-deildinni þrátt fyrir sárt tap gegn Þrótti 3-0 á heimavelli.
Lestu um leikinn: Grótta 0 - 3 Þróttur R.
„Fótbolti er bara þannig íþrótt að það lið sem gerir færri mistök það vinnur leikinn, og Þróttur gerði færri mistök en við í dag.''
Varðandi vítaspyrnu tilköll Gróttu í leiknum hafði Tóti þetta að segja:
„Ég ætla ekki leggja það ekki í vana minn að vera að krítísera dómara, frekar fer ég og ræði við þá, en það hefur nú verið dæmt víti á minna en þetta.''
Aðspurður um spilamennsku liðsins sagðist Þórhallur vera ánægður.
Við erum bara að vinna í ákveðnum hlutum og við erum að reyna að búa til lið til þess að geta tekist á við stóru liðin.
Athugasemdir