Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 27. maí 2017 14:02
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Morata hafnaði Man Utd
Mynd: Getty Images
Sky Italia heldur því fram að Alvaro Morata, sóknarmaður Real Madrid, hafi hafnað samningstilboði frá Manchester United.

Sky segir ástæðuna vera þá að Morata vilji frekar ganga til liðs við AC Milan, í ítölsku deildinni sem hann þekkir vel og elskar.

Morata er aðeins 24 ára gamall og hefur þegar gert 8 mörk í 19 A-landsleikjum fyrir Spán.

Sóknarmaðurinn er búinn að gera 15 mörk í 26 leikjum fyrir Real á tímabilinu og kemur til með að kosta 60 milljónir evra.
Athugasemdir
banner
banner