Joe Hart hefur staðfest að hann verði ekki áfram hjá Torino á næsta tímabili.
Hart hefur verið í láni hjá Torino frá Manchester City en síðasti leikur hans á Ítalíu var í lokaumferð Serie A í gær.
Hart fékk á sig 62 mörk í 36 leikjum með Torino en liðið endaði í níunda sæti á tímabilinu.

„Ég hef virkilega notið tímabilsins. Ég kem ekki aftur hingað en ég átti góða tíma," sagði Hart.
Óvíst er hvað tekur við hjá Hart en hann hefur sjálfur ekki áhuga á að fara aftur á lán. Hann verður því hjá City næsta vetur eða verður seldur frá félaginu í sumar.
Athugasemdir