Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   mán 29. maí 2017 22:41
Mist Rúnarsdóttir
Óli Guðbjörns: Gaman að sjá Hörpu koma inná
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar.
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við byrjuðum mjög vel fyrstu 5-10 mínúturnar en svo fjaraði undan þessu í fyrri hálfleik. Það var erfiður fyrri hálfleikur hjá okkur," sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar eftir 1-3 tap gegn Þór/KA í toppslag Pepsi-deildar kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  3 Þór/KA

„Svo fannst mér við töluvert betri í seinni hálfleik og það var allt annað að sjá liðið þá. Ég veit ekki hvort það var stress í byrjun eða hvað það var. En við áttum lélegan fyrri hálfleik."

„Við ætluðum að loka á þessa leikmenn þeirra sem eru að skapa hættu og þær fengu nú ekki mikið af færum í þessum leik og mér fannst mörkin þeirra klaufaleg af okkar hálfu. En það nýta sér góðir leikmenn og þær hafa nokkra svoleiðis. Það var verðskuldaður sigur hjá þeim í dag. Ég verð að viðurkenna það. Við nýttum ekki færin okkar en ég hefði viljað sjá fleiri mörk í seinni hálfleik hjá okkur."


Harpa Þorsteinsdóttir spilaði sinn fyrsta leik í sumar þegar hún kom inná sem varamaður en hún ól barn í vor og hefur verið að æfa með liðinu upp á síðkastið.

„Það er gaman að sjá Hörpu koma inná. Hún er búin að vinna vel í sínum málum, bæði fyrir og eftir fæðingu. Hún er á réttri leið og eins og allir aðrir í liðinu okkar að taka þátt í þessu eins og þær geta og reyna að standa sig. Hún er að taka sín fyrstu skref núna og vonandi fjölgar þeim skrefum í framhaldinu."

Nánar er rætt við Óla í viðtalinu hér að ofan. Hann segir þar að Guðmunda Brynja Óladóttir sé að verða klár eftir meiðsli aftan í læri en hún kom inná sem varamaður í dag.
Athugasemdir
banner
banner