Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 30. maí 2017 12:00
Magnús Már Einarsson
Stjóri Jóns Daða rekinn
Mynd: Getty Images
Paul Lambert hefur verið rekinn frá Wolves en félagið staðfesti þetta í dag. Úlfarnir enduðu í 15. sæti Championship-deildarinnar í vetur.

Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson leikur með Wolves en hann kom til félagsins frá Kaiserslautern í fyrrasumar.

Hinn 47 ára gamli Lambert tók við Wolves af Walter Zenga í nóvember í fyrra.

Zenga var einungis rúma tvo mánuði í starfi en hann var ráðinn eftir að Kenny Jackett var sparkað í júlí.

Hinn 47 ára gamli Lambert hefur áður stýrt liðum eins og Aston Villa, Norwich og Blackburn.
Athugasemdir
banner
banner