Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. maí 2017 12:30
Magnús Már Einarsson
Tilboð Bournemouth í Begovic samþykkt
Asmir Begovic.
Asmir Begovic.
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur samþykkt tilboð Bournemouth í markvörðinn Asmir Begovic.

Samkvæmt frétt Sky hljóðar tilboðið upp á tíu milljónir punda.

Begovic á sjálfur eftir að semja um laun og fara í læknisskoðun áður en skiptin ganga í gegn.

Bournemouth reyndi að fá Begovic í janúar glugganum en það gekk ekki.

Bournemouth hefur nú gert aðra tilraun en Begovic á að taka markmannsstöðuna af Artur Boruc.

Athugasemdir
banner
banner
banner