Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 10. mars 2005 18:49
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Þorbjörn Atli Sveinsson (Fram)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og lesendur hafa væntanlega tekið eftir þá hefur Hin Hliðin verið í fríi að undanförnu en þessi vinsæli liður er nú kominn aftur á síðuna. Nýr leikmaður mun sýna á sér hina hliðina einu sinni í viku til að byrja með og í dag er það Þorbjörn Atli Sveinsson 27 ára sóknarmaður hjá Fram sem ætlar að sýna á sér hina hliðina.

Þorbjörn lék með Fram áður en að hann fór til Bröndby í Danmerku árið 1998. Þar var hann í um eitt og hálft ár en kom svo aftur til Fram. Fyrir síðasta tímabil gekk hann til liðs við Fylki og skoraði hann 3 mörk í 14 leikjum með liðinu í efstu deild síðastliðið sumar. Alls hefur Þorbjörn leikið 120 leiki í efstu deild og skoraði í þeim 31 mark en hann á 15 landsleiki að baki með U-21 árs landsliði Íslands, 21 leik með U-19 ára landsliðinu og 23 leiki með U-17 ára liðinu.


Fullt nafn: Þorbjörn Atli Sveinsson

Gælunafn: Bjössi,Tobbi,Bjórbjörn,Björninn ungi.

Aldur: 27

Giftur/sambúð: Nei

Börn: Nei

Hvað eldaðir þú síðast? Hvítlauks og chillipasta

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Númer o á Eldsmiðunni

Hvernig gemsa áttu? Sony Ericsson 98789098

Uppáhaldssjónvarpsefni? The Office og Simpsons

Besta bíómyndin? Bananas og The Party

Hvaða tónlist hlustar þú á? Tom Waits er í uppáhaldi.

Uppáhaldsútvarpsstöð? Skonrokk,víst búið að hætta með hana,Rás 2 annars.

Uppáhaldsdrykkur? Canada Dry

Uppáhaldsvefsíða? http://astro.hi.is/~pallja/

Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?)? Já,fer aldrei í sömu nærbuxurnar.

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Ég held að það sé að tala við hann.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? L.A.Lakers

Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Sigurjón Kristjánsson

Erfiðasti andstæðingur? Ásgeir Elíasson

EKKI erfiðasti andstæðingur? Willum Þór Þórsson

Besti samherjinn? Birkir Kristinsson

Sætasti sigurinn? Fram - Þróttur 2003

Mestu vonbrigði? Öll meiðslin.

Uppáhalds lið í enska boltanum? Man United.

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Andrev Shevtjenkov!!!

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Ásgeir Elíasson

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Ágúst Þór Gylfason

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Ágúst Þór Gylfason

Fallegasta knattspyrnukonan? Ágúst Þór Gylfason

Grófasti leikmaður deildarinnar? Ágúst Þór Gylfason

Besti íþróttafréttamaðurinn? Valtýr Þór Valtýsson og Þorsteinn Vilhjálmsson

EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Brandur og Edda Andrésdóttir

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Það hlýtur að vera hann Ingólfur(spilar á gítar og þekkir gæjana úr Skítamóral,tekið fram að hann kemur frá Selfossi.

Hefurðu skorað sjálfsmark? Nei

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Eftir bikarúrslitaleik í Afríkulýðveldinu Malawi árið 2002 var greint frá því í blaði einu,undir fyrirsögninni "Great spell", að álög galdramanns Lilongwe United hafi gert útslagið í leiknum. En trú manna þar er sú að galdramenn liðanna hafi úrslitaáhrif á gengi þeirra. Ólíkt því sem við þekkjum þá tíðkast ekki að reka þjálfarana heldur galdramennina,sem er kannski ekki svo galið.

Það vildi þannig til að leikmaður úr Dedza F.C. var kominn einn í gegn á móti markmanni. Staðan var 2-1 fyrir Lilongwe United og skammt til leiksloka. Urðu málalok þau að áður en umræddur leikmaður náði að koma skoti á markið, gerði hann einn stóran í buxurnar(skeit á sig,hafði hægðir), brenndi færinu af og leikurinn tapaðist. Sá atburður var að sjálfsögðu rakinn beint til galdramanns Lilongwe United,og var galdramaður Dedza F.C. umsvifalaust rekinn fyrir þá sök að hafa ekki séð við hinum galdramanninum með mótgöldrum.

Fótboltinn er stundum ekki svo flókin íþrótt!!!

Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Nei

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Ég var 15 ára gamall.

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Mjög skemmtileg og fersk síða.

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Já,það geri ég.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Banna rauðhærða.

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Laufar S.Ómarsson vin minn(oft nefndur slátrarinn frá Ibiza),frægur fyrir lipurð á leikvellinum og fima takta á dansgólfinu. Er mikill performer og eykst vilji hans til að koma fram með hverri rauninni.

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Hlaupa.

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Laddi

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Rúmið mitt.

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Svona allt frá 4-8 sek.

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Anna Kurniykova

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já,öllu mögulegu.

Hver er uppáhalds platan þín? Closing Time með Tom Waits og Eniga Meniga með Olgu Guðrúnu.

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Það var á Ísland - Ítalíu

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Er ekki búinn að ákveða það.

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Öllu bóklegu.
Slapp
banner