„ÍA-stelpurnar eru sterkar og við þurftum að bíða lengi og vera þrautseigar til að ná þessum þremur stigum,“ sagði Agnes Þóra Árnadóttir, markvörður Þróttar, í samtali við Fótbolta.net eftir 3-0 sigur á ÍA.
Bandarísku leikmennirnir Sierra Marie Lelii og Michaela Mansfield voru öflugar fram á við fyrir Þrótt og komu að öllum þremur mörkum liðsins. Agnes er virkilega ánægð með þeirra innkomu.
„Þær eru mjög góðar. Þetta eru stelpur sem að við þekkjum. Ég spilaði með annari úti og Diljá með hinni úti í skóla. Það er gaman að fá svona fólk sem passar vel inn í hópinn.“
Þriðji erlendi leikmaðurinn lék svo sínar fyrstu mínútur með liðinu í kvöld en það er hin enska Darcey James.
„Hún er búin að mæta á tvær æfingar þannig að við erum að reyna að kynnast henni og vonandi náum við að kynnast henni betur á næstu vikum,“ sagði Agnes Þóra um nýjasta liðsstyrkinn en Þróttarar sem eru sem stendur í 2. sæti ætla sér upp um deild.
„Við stefnum að sjálfsögðu upp og það væri miklu skemmtilegra að vera í fyrsta sæti. Smá vúpsí á móti Sindra og eitthvað svona veldur því að við erum ekki ofar,“ sagði markvörðuinn öflugi að lokum en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir