Aston Villa hefur boðið John Terry samning um að leika með liðinu í Championship deildinni næsta vetur.
Terry er á förum frá Chelsea þegar samningur hans hjá Chelsea rennur út í lok mánaðarins. Aston Villa hefur gert Terry gott tilboð en félagið vonast eftir svari frá honum í næstu viku.
Terry er á förum frá Chelsea þegar samningur hans hjá Chelsea rennur út í lok mánaðarins. Aston Villa hefur gert Terry gott tilboð en félagið vonast eftir svari frá honum í næstu viku.
Fleiri félög hafa sýnt hinum 36 ára gamla Terry áhuga en þar á meðal eru nágrannar Aston Villa í Birmingham.
Terry er sjálfur staddur í sumarfríi á Portúgal en þar hafa sést myndir af honum í golfi með Steve Bruce, stjóra Aston Villa. Spurning er hvort Bruce nái að sannfæra Terry um að koma til Villa á meðan þeir slá nokkur högg saman.
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason gekk í raðir Villa í janúar en hann og Terry gætu nú orðið liðsfélagar.
Athugasemdir