Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. júní 2017 06:00
Elvar Geir Magnússon
EM U21: Portúgal úr leik
Leikmenn portúgalska liðsins svekktir í leikslok í gær.
Leikmenn portúgalska liðsins svekktir í leikslok í gær.
Mynd: Getty Images
Portúgalska U21-landsliðið missti naumlega af því að komast upp úr B-riðli Evrópumótsins.

Liðið vann Makedóníu 4-2 í lokaumferð riðilsins í gær en hefði þurft að skora eitt mark í viðbót til að komast áfram með bestan árangur í öðru sæti.

Spánn lauk riðlinum með fullu húsi.

Riðlakeppni mótsins lýkur á morgun þegar C-riðill klárast.

Makedónía 2 - 4 Portúgal
0-1 Edgar Ie
0-2 Bruma
1-2 Enis Bardhi
1-3 Daniel Podence
2-3 Kire Markoski
2-4 Bruma

Spánn 1 - 0 Serbía
1-0 Denis Suarez
Athugasemdir
banner
banner