Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er þessa stundina staddur á Akranesi á Norðurálsmótinu.
Norðurálsmótið er haldið um helgina, en mótið er með sama sniði og hefur verið undanfarin ár, þátttakendur eru úr 7. flokki karla og keppt er í 7 manna liðum og úrslit eru ekki skráð.
Norðurálsmótið er haldið um helgina, en mótið er með sama sniði og hefur verið undanfarin ár, þátttakendur eru úr 7. flokki karla og keppt er í 7 manna liðum og úrslit eru ekki skráð.
Guðni Th., sem var kjörin forseti Íslands síðasta sumar, er væntanlega staddur á mótinu til að fylgjast með syni sínum.
Það er skemmtilegt að segja frá því að Guðni var næturvörður á mótinu í nótt.
„Forseti Íslands, hann Guđni Th, er næturvörđur á Norđurálsmótinu í 6.flokki. Verđur þetta eitthvađ alþýđulegra? What a man! #fotboltinet," skrifaði Hranfkell Helgason, fyrrum leikmaður Fylkis, á Twitter.
Hér að neðan má sjá tístið.
Forseti Íslands, hann Guđni Th, er næturvörđur á Norđurálsmótinu í 6.flokki. Verđur þetta eitthvađ alþýđulegra? What a man! #fotboltinet
— Hrafnkell Helgason (@HHelgason7) June 23, 2017
Athugasemdir