Alvaro Arbeloa, fyrrum leikmaður Liverpool, Real Madrid og West Ham er hættur í fótbolta, aðeins 34 ára að aldri.
Arbeloa, sem lék sem vinstri bakvörður, spilaði þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni með West Ham á síðasta tímabili áður en Lundúnarfélagið leysti hann undan samningi.
Arbeloa, sem lék sem vinstri bakvörður, spilaði þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni með West Ham á síðasta tímabili áður en Lundúnarfélagið leysti hann undan samningi.
Hann vann spænsku úrvalsdeildina einu sinni og Meistaradeildina tvisar með Real Madrid áður en hann samdi við West Ham í ágúst.
„Það er kominn tími á að kveðja," sagði Arbeloa.
Hann lék meira en 200 leiki fyrir Liverpool, Madrid og West Ham á milli 2007 og 2017 og spilaði einnig 56 landsleiki fyrir Spán.
Arbeloa var hluti af spænska liðinu sem vann HM árið 2010 og hjálpaði liðinu einnig að vinna EM 2008 og 2012.
Athugasemdir