Edinson Cavani, sóknarmaður franska stórliðsins Paris Saint-Germain, viðurkennir að vera ekki besti leikmaður í heimi þegar kemur að tæknilegu hliðinni, en hann er að reyna að bæta sig.
Cavani fór á kostum með PSG á nýliðnu tímabili og skoraði 49 mörk í 50 leikjum í öllum keppnum. Hann telur þó að hann geti bætt sig, sérstaklega einn hluta af leik sínum.
Cavani fór á kostum með PSG á nýliðnu tímabili og skoraði 49 mörk í 50 leikjum í öllum keppnum. Hann telur þó að hann geti bætt sig, sérstaklega einn hluta af leik sínum.
„Ég skoraði mikið af mörkum á síðasta tímabili, en það er eðlilegt vegna þess að við erum með lið sem skapar mikið af færum," sagði Cavani í viðtali við heimasíðu félagsins.
„Ég hef oft sagt að ég sé ekki sá besti tæknilega, en ég hef unnið mikið í því að bæta mig í því og að vera í toppformi til að hjálpa liðinu að vinna eins marga titla og mögulegt er."
Athugasemdir