Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. júní 2017 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar: Ekki ég sem sagði Barca að kaupa hann
Vinur Neymar er að koma til Barca.
Vinur Neymar er að koma til Barca.
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Neymar segist ekki hafa sagt Barcelona að kaupa landa sinn, hann Lucas Lima.

Allt bendir til þess að sóknarmiðjumaðurinn Lucas Lima muni skrifa undir samning við Barcelona þann 1. júlí.

Hann kemur til Katalóníu í janúar þegar tímabilinu í Brasilíu lýkur, en þá rennur samningur hans við Santos út.

Lima, sem er 26 ára, og Neymar eru nánir vinir.

„Hann er góður vinur og ég vonast til þess að hann komi til Barcelona," sagði Neymar við Globo Esporte.

Neymar segir að þrátt fyrir að Lima sé góður vinur, þá hafi hann ekki sagt Barcelona að kaupa hann.

„Það eru margir orðrómar um mig. Ég vona bara að það gerist (að Lima komi til Barcelona). Ef ég hefði sagt Barcelona að kaupa hann, þá væri hann kominn," sagði Neymar léttur.
Athugasemdir
banner
banner
banner