„Mér fannst þetta vera víti. Hann keyrði í bakið á mér," sagði Sigurður Egill Lárusson leikmaður Vals eftir 1-1 jafntefli gegn Fjölni í 9. umferð Pepsi-deildarinnar í dag.
Sigurður Egill jafnaði metin fyrir Val á 83. mínútu úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur eftir að brotið hafi verið á honum innan teigs.
Sigurður Egill jafnaði metin fyrir Val á 83. mínútu úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur eftir að brotið hafi verið á honum innan teigs.
Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 1 Valur
„Þetta er held ég fjórða vítið sem ég skora úr í sumar þannig ég held bara áfram að taka vítin."
„Miðað við hvernig leikurinn þróaðist er ég ótrúlega pirraður að fá bara eitt stig. Við fengum urmul af færum, þrisvar bjargað á línu, slá, stöngin og slá. Ég er mjög svekktur að fá bara eitt stig," sagði Sigurður Egill en Valsmenn fengu eins og hann segir réttilega, fullt af góðum færum í leiknum til að skora fyrr.
„Það er einhver stífla núna. Ég er viss um að þetta mun koma í næstu leikjum. Við erum að skapa fullt af færum. Þetta hlýtur að fara koma."
Ólafur Jóhannesson sagði íviðtali við Fótbolta.net eftir leik ekki vera ánægðan með leik Vals í leiknum. Ólafur vildi meina að Valsmenn hafi ekki verið tilbúnir. Sigurður Egill segist ekki skilja þá ummæli þjálfarans.
„Ég held að Óli þurfi bara að horfa á leikinn aftur. Mér fannst þetta mjög góður leikur. Ég held að þeir hafi bara komist einu sinni inn í teiginn allan leikinn. Við fengum fullt af færum, þannig ég skil ekki alveg ummæli hans."
Viðtalið í heild sinni við Sigurð má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir