Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 24. júní 2017 16:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gústi Gylfa: Ákveðin áskorun á okkur núna
Ágúst tekur þetta stig.
Ágúst tekur þetta stig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við lögðum upp með að fá þrjú stig og mér fannst við vera nokkuð klókir fram eftir leik," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, eftir 1-1 jafntefli gegn Val í Pepsi-deild karla í dag.

Fjölnir komst yfir þegar korter var búið af leiknum, en Valsmenn náðu að jafna úr vítaspyrnu seint í leiknum.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  1 Valur

„Auðvitað er þetta frekar fúlt, en við tökum eitthvað jákvætt með þessu," sagði hann enn fremur.

Gústi var ekki sáttur með vítaspyrnudóminn.

„Miðað við hvernig leikurinn var búinn að vera, þá hefði aldrei verið dæmt á þetta, en hugsanlega var þetta hrinding og víti. En línan í leiknum gaf það ekki til kynna að þetta myndi vera víti."

„Við viljum samt sem áður ekkert liggja á því, leikurinn er búinn og 1-1 er niðurstaðan. Það er ákveðin áskorun á okkur núna, við erum neðarlega í deildinni, við fengum eitt stig í dag og við ætlum að halda áfram og taka þessa áskorun með sóma."

Hann segist ekki vera farinn að hugsa um félagsskiptagluggann.

„Við erum ekki komnir á það stig ennþá, við erum með flottan hóp og þetta er góð blanda."

Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner