Gareth Bale, leikmaður Real Madrid, gefur lítið fyrir það að hann sé á förum frá Evrópumeisturunum.
Marca hefur greint frá því að Real hafi náð samkomulagi við Kylian Mbappe, leikmann Mónakó, og ef þeir ná að landa honum þá þurfi Bale að fara frá félaginu.
Marca hefur greint frá því að Real hafi náð samkomulagi við Kylian Mbappe, leikmann Mónakó, og ef þeir ná að landa honum þá þurfi Bale að fara frá félaginu.
Bale, sem welskur landsliðsmaður, hefur verið orðaður við Manchester United, en hann kveðst ánægður á Spáni.
„Mér hefur aldrei liðið betur, og ég get ekki beðið eftir því að nýtt tímabil hefjist," sagði Bale við blaðamenn.
„Ég hef aldrei verið eins hungraður í að vinna titla með stærsta félagi heims og fyrir bestu stuðningsmenn heims."
Athugasemdir