Komin er upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net sem var á X-inu FM 97,7 í dag.
Upptökur af öllum þáttum koma inn á Vísi
Upptökur af öllum þáttum koma inn á Vísi
Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Arnar Daði Arnarsson ræddu um íslenska kvennalandsliðið sem býr sig undir lokakeppni EM í Hollandi.
Freyr Alexandersson var svo á línunni. Þó ekki í þeim megintilgangi að tala um kvennalandsliðið heldur níundu umferðina í Pepsi-deild karla.
Þá mætti Hreiðar Haraldsson íþróttasálfræðiráðgjafi og ræddi um andlega hlið fótboltamanna. Eru félög á Íslandi að hugsa nægilega mikið um þennan þátt? Hvaða andlegu áhrif hefur það á leikmenn að lenda í erfiðum meiðslum?
Athugasemdir