KR fór norður í dag og sóttu öll þrjú stigin á Akureyrarvöll.
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR-inga var að vonum sáttur með sigurinn.
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR-inga var að vonum sáttur með sigurinn.
Lestu um leikinn: KA 2 - 3 KR
„Það var kannski svona svipaður bragur á okkur núna og í síðasta leik gegn Breiðablik. Það hefði ekki verið hægt að segja neitt þó við við hefðum verið komnir í 2-0 þar eftir 20 mínútur, þar nýttum við ekki færin, við gerðum það í dag."
Arnór Sveinn lagði upp öll mörkin í dag og Willum var virkilega sáttur með hans framlag bæði varnarlega og sóknarlega í dag.
„Þú þarft að vanda þig hvenær þú ferð upp. Hann fer þrisvar upp, skilar þremur fyrirgjöfum sem skilar mörkum og var svo varnarlega mjög duglegur á Ásgeir sem er eitt okkar mesta efni, fljótur og alltaf að hlaupa þverhlaup á vörnina."
Viðtalið má sjá í heild sinni í tækinu hér að ofan.
Athugasemdir