Stephen Bradley, þjálfari írska liðsins Shamrock Rovers, mætti á leik Stjörnunnar og ÍA í Pepsi-deildinni á laugardaginn. Bradley kynnti sér þar lið Stjörnunnar fyrir leik liðanna í Evrópudeildinni í Garðabæ á fimmtudaginn.
„Ef við spilum okkar besta leik þá eigum við góða möguleika," sagði Bradley.
„Stjarnan er gott lið og mjög sterkt í föstum leikatriðum. Þetta ætti að verða jafn leikur því að þeir eru svipaðir sterkir og við. Ef við spilum eins vel og við getum þá getum við unnið í tveggja leikja einvígi."
„Þeir eru með líkamlega sterkt lið, löng innköst og góð föst leikatriði. Við vinnum heimavinnuna og verðum klárir gegn þeim."

684 áhorfendur sáu Stjörnuna og ÍA gera 2-2 jafntefli á laugardaginn.„Þetta er lítill leikvangur með einni stúku svo ég get komið öllum upplýsingum áfram til leikmanna minna í leikjum," sagði Bradley.
Athugasemdir