Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 26. júní 2017 13:11
Magnús Már Einarsson
De Boer tekinn við Crystal Palace (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Frank de Boer hefur verið ráðinn stjóri Crystal Palace en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi nú rétt í þessu.

De Boer tekur við starfinu af Sam Allardyce sem hætti nokkuð óvænt eftir tímabilið.

De Boer var síðast þjálfari Inter en hann var rekinn í nóvember eftir tæplega þrjá mánuði í starfi.

Þar áður var De Boer þjálfari Ajax þar sem hann varð fjórum sinnum meistari.

Hinn 47 ára gamli De Boer átti einnig farsælan feril sem leikmaður þar sem hann spilaði meðal annars með Ajax og Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner