Arturo Vidal, miðjumaður Bayern München, er alls ekki hrifinn af Cristiano Ronaldo, sem er af flestum talinn annar af tveimur bestu leikmönnum heims með Lionel Messi.
Vidal og liðsfélagar hans í landsliði Síle mæta Ronaldo og hans mönnum í Portúgal í undanúrslitum Álfukeppninnar í Rússlandi.
Vidal og liðsfélagar hans í landsliði Síle mæta Ronaldo og hans mönnum í Portúgal í undanúrslitum Álfukeppninnar í Rússlandi.
Vidal er mjög sigurviss fyrir leikinn, en hann sagði blaðamönnum einnig frá áliti sínu á Ronaldo.
„Cristiano er hálfviti," sagði Vidal þegar hann talaði við blaðamenn í Rússlandi. „Fyrir mér þá er hann ekki til."
„Ég hef nú þegar sagt Joshua Kimmich, liðsfélaga mínum hjá Bayern að við munum hittast í úrslitaleiknum."
Athugasemdir