Ingvar Jónsson hefur leikið mjög vel með Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Ingvar hefur haldið fimm sinnum hreinu í 14 umferðum og hjálpað Sandefjord að komast í 9. sæti eftir að hafa verið spáð fallbaráttu fyrir mót.
Á vefsíðunni altomfotball.no er Ingvar einkunnahæstur markvarða í deildinni. Ingvar er í 16. sæti yfir alla leikmenn í deildinni en Aron Sigurðarson hjá Tromsö er efstur Íslendinga í 13. sætinu.
Ingvar átti tvær magnaðar vörslur frá Aroni í sömu sókninni í leik Sandefjord og Tromsö um helgina.
Aron náði hins vegar einnig að skora í leiknum og lokatölur urðu 1-1. Aron er nú búinn að skora fjögur mörk í síðustu sjö leikjum en hollenska félagið Twente er að reyna að fá hann í sínar raðir.
Hér að neðan má sjá vörslurnar hjá Ingvari og markið hjá Aroni.

Well done @AronSig 🇮🇸👊⚽️ He started the attack & finished it! His 4th goal in 7 games. #TeamTotalFootball pic.twitter.com/wI2Om9SwYq
— Total Football (@totalfl) June 26, 2017
Athugasemdir