Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
   þri 27. júní 2017 20:28
Arnar Daði Arnarsson
Úlfur: Fengum færi til að vinna leikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er feikilega ánægður með stelpurnar í dag og spilamennskuna," sagði Úlfur Blandon þjálfari Vals eftir 1-1 jafntefli gegn Þór/KA á heimavelli í 10. umferð Pepsi-deild kvenna.

Valsliðið var betra aðilinn í leiknum og fengu aragrúa af færum til að skora fleiri mörk.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  1 Þór/KA

„Mér fannst við mæta tilbúnar í þennan leik. Við fengum alveg nógu mörg færi til að vinna leikinn. Því miður vildi boltinn ekki inn. Við sköpuðum fullt af hættulegum færum."

„Heilt yfir er ég mjög sáttur með spilamennskuna í kvöld."

„Mér fannst vera mikill kraftur í liðinu. Við vitum að Þór/KA spilar fast og við ætluðum að mæta tilbúnar og aggresívar í þennan leik og liðið gerði það," sagði Úlfur en Valur mætir ÍBV á sunnudaginn í síðasta leik deildarinnar fyrir EM pásuna.

„Við förum núna á fullt í að undirbúa okkur fyrir leikinn gegn ÍBV. Auðvitað er fókusinn þar núna. Í frí-inu munum við síðan æfa fótbolta og höldum áfram að æfa og gera okkur klára fyrir seinni hlutann á mótinu."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner