Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 27. júní 2017 23:37
Þórhallur Valur Benónýsson
Harpa: Náðum ekki að klára nægilega vel á síðasta þriðjungi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Harpa Þorsteinsdóttir var maður leiksins í stórsigri Stjörnunnar á Haukum fyrr í kvöld. Harpa á afmæli í dag og skoraði tvö mörk í tilefni dagsins. Hún var heilt yfir ánægð með leik síns liðs í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 5 -  0 Haukar

„Við náðum að leysa ótrúlega vel úr, sérstaklega í fyrri hálfleik, á móti þéttum varnarleik hjá Haukum og þetta var svona nokkurn veginn það sem lagt var upp með."

Um miðjan seinni hálfleik fór Harpa að draga sig meira út á kantinn og reyna langar skiptingar inn í opið svæði í Haukavörninni.

„Ég var svona að reyna að koma einhverju að, þær voru náttúrulega þéttar og við kannski föllum fullmikið niður með tempóið hjá okkur svo maður var bara að reyna að finna glufurnar."

Framan af leik virtist vera aðeins of mikil ákefð í Stjörnukonum og loka ákvarðanirnar urðu oft slakar. Harpa fann aðeins fyrir því en var þó sátt með leik liðsins.

„Já við vorum kannski ekki að klára nægilega vel á síðasta þriðjungi en við skorum samt fjögur mörk og komumst alveg sáttar frá þessu"

Viðtalið má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner