Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   þri 27. júní 2017 23:06
Hulda Mýrdal
Orri: Það var einsog loftið læki úr blöðrunni
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
„Fyrri hálfleikur góður, nokkuð jafn og við vel inní leiknum. En það er í raun seinni hálfleikur sem er mjög slakur af okkur hálfu, þær komu framar á völlinn og pressuðu. Mér fannst við aldrei komast almennilega út úr þeirri pressu“ sagði Orri aðspurður um leik síns liðs í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 0 -  5 Breiðablik

„Gegn frábæru liði einsog Breiðablik er, þá er erfitt að koma til baka og jafna eða vinna leikinn en við þurfum að halda áfram til að klára leikinn með sóma. Það var það sem við gerðum ekki, við erum að fá á okkur fjórða markið, nánast gjöf og í uppbótartíma, erum við að verjast hornspyrnu og gerum það ekki. Það finnst mér slakkt og við verðum að gera betur þar“ sagði Orri aðspurður hvort að um uppgjöf hefði verið að ræða hjá hans liði í dag.


Hvort að það væri erfitt að gíra liðið þegar það er um miðja deild sagði Orri:„Nei það held ég ekki. Síðasti leikur frábær en ég veit ekki hvort það hafi farið svona mikil orka í fyrri hálfleik því við mættum þeim framarlega. En einhvernveginn leit þetta út eftir annað markið eins og að loftið læki úr blöðrunni. Stefnum á miklu fleiri stig og erum ekki öruggar með sæti í deildinni“

Að lokum var Orri spurður út í næsta leiki:„Við eigum þá Hauka, Fylki, KR í einni beit, við hljótum að nálgast þá leiki einsog úrslitaleiki“

Nánar er rætt við Orra í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner