Það er nóg af leikmönnum sem eru með lausan samning og félög geta stokkið á, þó sumir þeirra yrðu vissulega áhætta.
Guardian setti saman úrvalslið leikmanna sem eru lausir.
Guardian setti saman úrvalslið leikmanna sem eru lausir.
Markvörður: Iker Casillas - 36 ár er hár aldur hjá fótboltamanni en ekki endilega hjá markverði. Eftir tveggja ára dvöl hjá Porto er þessi fyrrum markvörður Real Madrid atvinnulaus.
Miðvörður: Pepe - Farinn frá Real Madrid og PSG er sagt hafa áhuga. Einn besti leikmaður EM í fyrra. Fótbolti snýst um skemmtun og þess vegna verður Pepe að fá samning sem fyrst!
Miðvörður: John Terry - Erfitt að sjá hann berjast í stóru liði í toppbaráttu aftur en hann ætti þó að hafa næga valmöguleika.
Miðvörður: Gael Clichy - Þó menn séu ekki taldir nægilega góðir fyrir Man City þýðir það ekki að þeir geti ekki gert góða hluti annars staðar.
Hægri vængbakvörður: Jesús Navas - Leggur sig alltaf fram þó mun meira hefði mátt koma út úr honum hjá City. Hann gæti orðið öflugur í stöðu vængbakvarðar.
Vinstri vængbakvörður: Zoran Tosic - Laus eftir sjö ár hjá CSKA Moskvu. Var á sínum tíma hugsaður sem arftaki Ryan Giggs hjá Man Utd en lék færri leiki fyrir félagið en Bebe! Er orðaður við stærstu lið Tyrklands.
Miðjumaður: Jan Kirchhoff - Meiðsli gerðu honum erfitt fyrir hjá Sunderland. Áhugasöm félög gætu horft framhjá liðnu tímabili og hugsað til þess að leikmaðurinn var eitt sinn í talsverðum metum hjá Bayern München.
Miðjumaður: Sulley Muntari - Þessi 32 ára leikmaður var spjaldaður fyrir að ganga af velli eftir að hafa orðið fyrir kynþáttaníð í leik með Pescara. Spilaði ekki fyrir félagið eftir það en er nú fáanlegur á frjálsri sölu.
Sóknarmaður: Rachid Ghezzal - Örvfættur vængmaður sem hefur mikla hæfileika en átt erfitt með að finna stöðugleika. 25 ára, farinn frá Lyon og hefur verið orðaður við Everton.
Sóknarmaður: Richmond Boakye Yiadom - Ganverji sem skoraði 16 mörk í 19 leikjum á lánssamningi með Rauðu Stjörnunni á síðasta tímabili. Áhugaverður kostur en hann var samningsbundinn Latina í ítölsku B-deildinni.
Sóknarmaður: Zlatan Ibrahimovic - Er þegar farinn að æfa með Manchester United eftir meiðslin... honum langar ekki að fara.
Athugasemdir