Fabio Borini, framherji Sunderland, er á leið í læknisskoðun hjá AC Milan.
Félögin hafa náð samkomulagi um kaupverð upp á 5,3 milljónir punda.
AC Milan hafði áhuga á að fá Borini í janúar en þá vildi Sunderland ekki selja þar sem liðið var í fallbaráttu.
Eftir fall Sunderland hefur Borini fengið grænt ljós á að fara og félagaskiptin ættu að ganga í gegn fyrir helgi.

Hinn 26 ára gamli Borini kom til Sunderland frá Liverpool á 14 milljónir punda árið 2014.
Athugasemdir