Dani Alves hefur staðfest það að hann sé búinn að yfirgefa Ítalíumeistara Juventus. Þessi 34 ára bakvörður átti eitt tímabil á Ítalíu eftir að hafa verið lykilmaður hjá Barcelona.
Alves sendir hjartnæma kveðju til stuðningsmanna Juventus gegnum Instagram.
Hans síðasti leikur fyrir Juventus var 4-1 tapið gegn Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Cardiff. Alves lék 33 leiki fyrir félagið og varð ítalskur meistari og bikarmeistari.
Talið er langlíklegast að Alves fari til Manchester City þar sem hann mun hitta Pep Guardiola á ný. Guardiola var þjálfari Alves hjá Barcelona.
Athugasemdir