Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 28. júní 2017 16:15
Magnús Már Einarsson
Gomis til Galatasaray (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Bafetimbi Gomis, framherji Swansea, hefur gengið í raðir Galatasaray í Tyrklandi.

Kaupverðið var ekki gefið upp en talið er að það sé í kringum 2,5 milljónir punda.

Hinn 31 árs gamli Gomis kom frítt til Swansea frá Lyon árið 2014.

Hann skoraði 17 mörk í 71 leik með Swansea á ferli sínum hjá félaginu.

Á síðasta tímabili var Gomis í láni hjá Marseille þar sem hann skoraði 20 mörk í 32 leikjum í frönsku úrvalsdeildinni.



Athugasemdir
banner