Vinstri bakvörðurinn efnilegi Ryan Sessegnon hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Fulham.
Hinn 17 ára gamli Sessegnon vakti mikla athygli í Championship deildinni á síðasta tímabili.
Liverpool, Tottenham og fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni sýndu honum áhuga en nú er ljóst að hann fer ekki fet í sumar.

Fulham hafði sagt öðrum félögum að Sessegnon væri ekki til sölu og hann hefur nú framlengt samning sinn.
„Ég fékk mörg tækifæri hjá stjóranum á síðasta tímabili og ég vil halda þessu áfram," sagði Sessegnon eftir undirskriftina í dag.
CONFIRMED: @RyanSessegnon has signed his first professional contract, keeping him at #ffc until 2020 ✍️🙌
— Fulham Football Club (@FulhamFC) June 28, 2017
Read more: https://t.co/79iKLIRHSd pic.twitter.com/KBYGhc06ns
Athugasemdir