Bakvörðurinn Jonathan Hendrickx, sem hefur leikið með FH undanfarin ár, er á leið til Portúgals. Þar mun hann ganga í raðir Leixões S.C., sem leikur í næst efstu deild Portúgals.
Það var staðfest á dögunum að Hendrickx væri á förum frá FH. Hann fer strax út til Portúgals.
Það var staðfest á dögunum að Hendrickx væri á förum frá FH. Hann fer strax út til Portúgals.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var spurður út í það eftir leik gegn ÍBV á dögunum og þar staðfesti hann að leikmaðurinn væri á förum frá Fimleikafélaginu.
„Hann er væntanlega að fara til liðs erlendis," sagði Heimir þegar hann var spurður út í málið.
„Við reiknum með því að það verði klárað á næstunni."
Nú er þetta klappað og klárt. Hendrickx, sem er fæddur árið 1993, kom fyrst til FH í júlí 2014 og hefur verið lykilmaður í liðinu síðan þá. Hann spilaði 19 leiki þegar liðið varð Íslandsmeistari síðasta sumar.
Leixões fór í umspil um að halda sæti sínu í næst efstu deild Portúgals, en þeir náðu að halda sér uppi.
Athugasemdir