Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 28. júní 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lukaku með létt skot á stuðningsmenn Everton
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Romelu Lukaku gerði stuðningsmenn Everton brjálaða í síðustu viku.

Lukaku birti þá myndband þar sem hann er að leika sér á fótboltavelli merktum Chelsea.

Það hefur núna verið vitað í nokkurn tíma að Lukaku er á förum frá Everton, en hann hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning. Hann hefur verið sterklega orðaður við Chelsea

Margir stuðningsmenn Everton voru ekki sáttir með þessa hegðun Lukkau og létu hann heyra það á Twitter.

Lukaku hefur nú birt annað myndband.

„Engir borðar svo þið séuð ánægðir," sagði Lukaku í myndbandinu, en þar er hann aftur mættur á fótboltavöll. Í þetta skiptið er völlurinn ekki merktur Chelsea.

😂😩

A post shared by Romelu Lukaku bolingoli (@rlukaku9) on



Sjá einnig:
Stuðningsmenn Everton brjálaðir út í hegðun Lukaku
Athugasemdir
banner
banner