Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. júní 2017 19:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Álfukeppnin: Framlengt hjá Portúgal og Síle
Mynd: Getty Images
Portúgal 0 - 0 Síle

Fyrri undanúrslitaleikurinn í Álfukeppninni í Rússlandi fer fram í Kazan í kvöld. Portúgal og Síle eigast við í leiknum.

Nú er venjulegur leiktími liðinn og ekkert mark hefur verið skorað.

Leikurinn byrjaði af krafti og bæði lið fengu tækifæri til að skora, en þegar leið á róaðist leikurinn.

Hvorugu liðinu tókst að skapa mikið af færum í seinni hálfleiknum og þegar dómarinn flautaði til leiksloka var staðan enn markalaus.

Það þarf því að grípa til framlengingar, en hún hefst innan skamms.
Athugasemdir
banner
banner
banner