Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 29. júní 2017 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viktor Fischer í raðir Mainz (Staðfest)
Farinn frá Middlesbrough.
Farinn frá Middlesbrough.
Mynd: Getty Images
Hinn danski Viktor Fischer er genginn í raðir Mainz eftir aðeins eins árs dvöl hjá enska liðinu Middlesbrough.

Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Mainz.

Hinn 23 ára gamli Fischer kom til Middlesbrough frá Ajax síðasta sumar, en tímablið fór ekki alveg eins og hann hafði vonað.

Hann kom aðeins við sögu í 13 úrvalsdeildarleikjum og tókst ekki að skora er Middlesbrough féll úr ensku úrvalsdeildinni.

„Mainz er rétt félagið fyrir mig svo ég geti notið fótbolta aftur," sagði Fischer við heimasíðu félagsins.

Mainz endaði í 15. sæti þýsku Bundesligunnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner