Umboðsmaður markvarðarins Thibaut Courtois segist hafa fundað með spænska stórveldinu Real Madrid.
Courtois er aðalmarkvörður Englandsmeistara Chelsea, en samningsviðræður hans þar hafa dregist á langinn.
Courtois er aðalmarkvörður Englandsmeistara Chelsea, en samningsviðræður hans þar hafa dregist á langinn.
Hann var í láni hjá Atletico Madrid frá 2011 til 2014 og hefur með reglulegu millibili verið orðaður við endurkomu til borgarinnar.
„Auðvitað hafa stóru liðin áhuga á Thibaut, þar á meðal ríkjandi sigurvegarar í Meistaradeild Evrópu," sagði umboðsmaður hans, Christophe Henrotay, við Sport Foot.
„Hann hjálpar þér að vinna leiki og titla. Ég hitti þá sem stjórna hjá Real Madrid reglulega, og Thibaut hefur komið upp í samræðum."
Athugasemdir