Sóknarmanninum Wilfried Bony langar að sýna sig og sanna fyrir Pep Guardiola, stjóra Manchester City.
Bony varði síðasta tímabili á láni hjá Stoke, en þar fann hann sig engan veginn. Hann fékk lítið að spila og nýtti ekki þann tíma sem hann fékk inn á vellinum.
Bony varði síðasta tímabili á láni hjá Stoke, en þar fann hann sig engan veginn. Hann fékk lítið að spila og nýtti ekki þann tíma sem hann fékk inn á vellinum.
Það er næg samkeppni í sóknarleiknum hjá Man City. Gabriel Jesus kom í janúar og þar er fyrir Sergio Aguero. Þá bendir allt til þess að Guardiola muni bæta við sig öðrum sóknarmanni í sumar, en Alexis Sanchez og Pierre-Emerick Aubameyang hafa báðir verið nefndir.
„Ég elska félagið og stuðningsmennina. Ég vil sýna að Wilfried Bony er enn sami leikmaðurinn. Ég hef gengið í gegnum erfiða tíma," sagði Bony í viðtali við Sky Sports.
„Ég var markahæstur fyrir tveimur árum, ég er enn sami leikmaðurinn, þetta var bara erfiður tími."
Athugasemdir