Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 28. júní 2017 23:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldinho: Rashford er góð manneskja
Mynd: Getty Images
Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, fékk kannski stjörnur í augun þegar hann hitti Ronaldinho, en miðað við nýjustu ummæli Brasilíumannsins þá fékk hann líka stjörnur í augun.

Hinn 19 ára gamli Rashford hitti Ronaldinho á veitingastað og fékk bolamynd af sér með honum.

Ronaldinho er einn flinkasti fótboltmaður allra tíma, en hann lék m.a. með Barcelona og Paris Saint-Germain á ferli sínm.

Rashford setti inn mynd á Instagram og skrifaði við hana: „Fínt að setjast niður og spjalla við kónginn."

Ronaldinho var greinilega hrifinn af því að hitta Rashford því hann deildi sömu mynd.

„Hann hefur gæði sem fótboltamaður, ásamt því að vera góð og auðmjúk manneskja," skrifaði Ronaldinho.

Myndina má sjá hér að neðan.

@Marcusrashford 👊 Tem muito futebol, além de ser um jovem humilde e gente boa!

A post shared by Ronaldo de Assis Moreira (@ronaldinho) on


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner