Sara Hrund Helgadóttir var gríðarlega ánægð með sigur Grindavíkur gegn Fylki í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Sigurinn var ákaflega mikilvægur.
„Þetta voru sannkölluð sex stig eins og maður segir," sagði Sara Hrund, leikmaður Grindavíkur.
Það var ljómandi gott veður í Grindavíkinni í kvöld, kominn tími til segja margir.
„Síðustu leikir hafa verið rok og rigning þannig þetta var kærkomið og ótrúlega skemmtilegt að spila. Það bættist aðeins í stúkuna og gott veður þannig þetta gerist ekki betra."
Grindavík komst yfir snemma í seinni hálfleik en Fylkiskonur jöfnuðu strax í næstu sókn.
„Það var dálítil blaut tuska í andlitið en ég er samt ánægð með stelpurnar að hengja ekki haus við það og við héldum bara áfram og mér fannst við bara bæta í við það."
Grindavík komst aftur yfir þegar rúmur hálftími var eftir af leiknum. Erfitt var að sjá hvort um væri að ræða sjálfsmark eða mark Elenu Brynjarsdóttur.
„Ég hélt fyrst að boltinn hafi farið inn beint úr hornspyrnunni en svo slær markmaðurinn boltann út og mér fannst Elena klára þetta þá til þess að vera alveg örugg."
Næsti leikur Grindavíkur er gegn Haukum. Þar má búast við hörkuleik en bæði lið eru í botnbaráttunnu, þrátt fyrir að staða Grindvíkinga líti töluvert betur út núna en fyrir leikinn í kvöld
Algjörlega, við getum ekki beðið. Þetta eru leikirnir sem maður getur ekki beðið eftir og bara gaman að spila þessa leiki."

Athugasemdir