Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. júní 2017 13:42
Magnús Már Einarsson
Defoe til Bournemouth (Staðfest)
Magnaður markaskorari.
Magnaður markaskorari.
Mynd: Getty Images
Bournemouth hefur keypt framherjann reynda Jermain Defoe frá Sunderland.

Eftir fall Sunderland úr ensku úrvalsdeildinni var ljóst að Defoe myndi fara frá félaginu og skiptin til Bournemouth hafa legið í loftinu í talsverðan tíma.

Hinn 34 ára gamli Defoe hefur raðað inn mörkum með Sunderland undanfarin ár og komist aftur í enska landsliðið.

Hann þekkir til hjá Bournemouth eftir að hafa leikið með liðinu á láni frá West Ham tímabilið 2000/2001.

„Þegar tækifærið bauðst að snúa aftur til AFC Bournemouth þá vissi ég að þetta væri rétta tækifærið," sagði Defoe.
Athugasemdir
banner
banner