Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. júlí 2017 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Matti Villa með 11 mörk í 11 leikjum
Mynd: Getty Images
Sogndal 0 - 3 Rosenborg
0-1 Milan Jevtovic ('31)
0-2 Fredrik Midtsjö ('56)
0-3 Matthías Vilhjálmsson ('78)

Matthías Vilhjálmsson er að gera magnaða hluti með norska meistaraliðinu Rosenborg.

Hann hefur verið sjóðheitur fyrir framan markið að undanförnu, en þrátt fyrir það ákvað þjálfari Rosenborg að byrja með hann á bekknum gegn Sogndal um helgina. Hann ákvað frekar að byrja með Nicklas Bendtner í fremstu víglínu.

Matthías kom inn á fyrir Bendtner eftir rúmlega klukkutíma leik. Þá var staðan 2-0 fyrir norsku meistarana.

Matthías gerði síðan endanlega út um leikinn á 78. mínútu með sínu 11. marki í síðustu 11 leikjum Rosenborg.

Frábær árangur hjá Matta, en hér að neðan má sjá markið sem hann skoraði gegn Sogndal um helgina.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner