Líkurnar á að Ivan Perisic, kantmaður Inter, fari til Manchester United eru alltaf að aukast.
Inter hefur viljað fá 48 milljónir punda fyrir Perisic en viðræður á milli félaganna hafa verið í gangi í sumar.
Inter hefur einnig spurst fyrir um möguleikann á að fá Anthony Martial í skiptum.
Inter hefur viljað fá 48 milljónir punda fyrir Perisic en viðræður á milli félaganna hafa verið í gangi í sumar.
Inter hefur einnig spurst fyrir um möguleikann á að fá Anthony Martial í skiptum.
Samkvæmt frétt Sky eru líkurnar á að Perisic endi á Old Trafford að aukast en Inter er að reyna að fá Keita Balde frá Lazio til að fylla skarð hans.
Perisic yfirgaf æfingabúðir Inter um helgina en félagið sagði ástæðuna vera þá að hann sé með tannpínu og þurfi að leita til tannlæknis.
Athugasemdir