Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. júlí 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Eiður Smári æfir með Breiðabliki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen æfði með Breiðabliki í síðustu viku og mun gera það áfram á næstunni.

„Hann vildi fá að spila fótbolta. Honum finnst ekki gaman að vera bara í ræktinni og hann vildi breyta til," sagði Milos Milojevic, þjálfari Breiðabliks við Fótbolta.net í dag.

Hinn 38 ára gamli Eiður fór í fyrra frá Molde í Noregi til Pune í ofurdeildinni á Indlandi. Meiðsli á ökkla komu hins vegar í veg fyrir að hann gæti spilað þar.

Í janúar fór Eiður til Katar í endurhæfingu og hann er nú byrjaður að æfa fótbolta á fullu á nýjan leik.

Eiður spilaði í góðgerðarleik Michael Carrick í síðasta mánuði en hann hefur ekkert gefið út um framtíð sína í fótboltanum ennþá.

Milos segir að Breiðablik sé ekki í viðræðum við Eið í augnablikinu. „Það væri samt ekki slæmt að fá hann," sagði Milos.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner