Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 21. júlí 2017 08:00
Magnús Már Einarsson
Ísak Snær semur við Norwich
Mynd: .
Ísak Snær Þorvaldsson hefur skrifað undir þriggja ára samning hjá Norwich í Englandi.

Ísak Snær hefur leikið í yngri flokkum Aftureldingar en síðastliðinn vetur var hann á mála hjá Norwich.

Hann hefur nú gert þriggja ára unglingasamning við enska félagið.

Ísak er 16 ára gamall en hann var í U17 ára landsliðinu sem tók þátt í UEFA móti fyrr á þessu ári.

Á myndinni hér til hliðar eru Gregg Broughton hjá Norwich, Ísak og Ólafur Garðarsson umboðsmaður Ísaks við undirskrift.
Athugasemdir
banner
banner