Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 20. júlí 2017 23:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Tottenham áhugasamt um Mahrez
Er Mahrez á leið í Tottenham?
Er Mahrez á leið í Tottenham?
Mynd: Getty Images
Samkvæmt France Football hefur Tottenham áhuga á Riyad Mahrez en félagið hefur sent fyrirspurn til Leicester um Alsírmanninn.

Tottenham er eina félagið í ensku úrvalsdeildinni sem á eftir að kaupa leikmann í sumar.

Tottenham er þó ekki eina félagið í úrvalsdeildinni sem hefur áhuga á Mahrez en Arsenal hefur lengi haft áhuga á leikmanninum.

Pochettino á nóg af pening til þess að versla leikmenn en þrátt fyrir það hefur hann verið rólegur. Tottenham fékk 50 milljónir punda fyrir að selja Kyle Walker til Manchester City.

Mahrez var frábær á þarsíðasta tímabili þegar Leicester varð enskur meistari en þá var hann valinn besti leikmaður deildarinnar. Síðasta tímabil var hins vegar ekki eins gott hjá Mahrez, líkt og öllu Leicester liðinu en hann yrði án efa mikil viðbót við annars gott Tottenham lið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner