Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fim 20. júlí 2017 22:01
Valur Gunnarsson
Dóri: Ekki til sóma fyrir okkur í Breiðholtinu
Halldór var ekki með í dag en stýrði af hliðarlínunni
Halldór var ekki með í dag en stýrði af hliðarlínunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
"Þetta er sárt. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við töpum svona á móti HK á þessu tímabili. Þeir voru betri í dag en við verðum að horfa á okkar leik sem var ekki nógu góður þó hann hafi verið góður á köflum."

Lestu um leikinn: Leiknir R. 1 -  2 HK

Halldór var sammála því að Leiknismenn hafi verið líklegri undir lokin:
"Við vorum fegnir að sjá 6 mínútur í uppbót því vildum stigin þrjú en fengum það í bakið. Við erum aumir líkamlega sem við erum ekki vanir."

"Það er erfitt að kalla lið minni eða miðlungs eins og deildin er að spilast en það virðist vera erfiðara að gíra okkur fyrir liðin í kringum okkur"


Aðspurður út í félagaskiptagluggann svaraði Dóri:
"Við erum að skoða í kringum okkur. Við missum mann út og misstum mann í ökklabrot þannig að við erum með eyrun opin."

"Við erum ósáttir við stigasöfnum. Við unnum síðustu 2 en fyrir það erum við með 11 stig í 11 leikjum sem er ekki okkur til sóma í Breiðholtinu!"

Athugasemdir
banner
banner
banner