Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 21. júlí 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Manquillo til Newcastle (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Newcastle hefur kepyt bakvörðinn Javier Manquillo frá Atletico Madrid en hann skrifaði undir þriggja ára samning við enska félagið í dag.

Hinn 23 ára gamli Manquillo var í láni hjá nágrönnum Newcastle í Sunderland á síðasta tímabili.

Tímabilið 2014/2015 var Manquillo í láni hjá Liverpool og tímabilið eftir það var hann hjá Marseille.

Eftir rólega byrjun á félagaskiptaglugganum þá er Manquillo fjórði leikmaðurinn sem Rafael Benítez fær til Newcastle í sumar.

Kantmaðurnn Jacob Murphy kom frá Norwich í vikunni og áður hafði félagið fengið þá Christian Atsu og Florian Lejeune í sínar raðir. Atsu var í láni hjá Newcastle á síðasta tímabili en félagið keypti hann frá Chelsea í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner