Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. júlí 2017 09:30
Dagur Lárusson
Arsenal boðið að kaupa Rafinha
Rafinha
Rafinha
Mynd: Getty Images
Nýjustu fréttir herma að spænska liðið, Barcelona, hafi boðið Arsenal að kaupa brasilíska miðjumanninn Rafinha.

Rafinha er 24 ára miðjumaður en hann fór ekki með Barcelona í æfingarferð liðsins til Bandaríkjanna nú í vikunni.

Barcelona er tilbúið að hlusta á tilboð upp á 30 milljónir evra og er Arsenal talið eitt af þeim liðum sem sé tilbúið að borga þann pening.

Þessar fréttir eru athyglisverðar þar sem að í síðustu viku sagði Josep Maria Bortomeu, forseti Barcelona, að leikmaðurinn væri ekki til sölu.

Rafinha sagði sjálfur í byrjun sumars að framtíð hans væri í óvissu og að aðeins guð viti hvað muni gerast

„Framtíð mín er alveg galopin og aðeins guð veit hvar ég mun spila á næstu leiktíð."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner